Jæja þá er ég loksins byrjuð að blogga. Er enn ekki komin með tölvu þar sem við eigum ekkert heimili ennþá... erum að vinna í því en gamla íslenska snobbið er soldið að láta á sér kræla þar sem standardinn er nokkur annar hér hvað varðar veraldleg gæði! En við erum aðeins búin að tuna okkur niður á þessum rúmum tveim vikum sem við höfum verið hér. BBQ að minnsta kosti einu sinni í viku, leikið "crazyball" og "mexican horseshoe" og svo bara chillað í sólinni. Reyndar var ágætur dagur í dag því það var soldið "kalt" bara 28 stiga hiti og svo var reykjarmökkur yfir bænum og brunalykt því það var skógareldur einhversstaðar í nágrenninu!! Litla skvísan er að aðlagast, var svolítið strekkt fyrstu vikuna og leið á því að hanga bara með mömmu sinni en er núna að kynnast nokkrum stelpum og byrjar svo í leikskóla ekki á morgun heldur hinn júhú... líka soldið gott fyrir mömmu :) Mamma er líka að kynnast fullt af fólki og stefnir á fyrsta "girls night out" næstkomandi föstudagskvöld gaman gaman.
Svo ætlar Sigtryggur líka að reyna að blogga en hann er búinn að vera að vinna non stop síðan við komum, vona bara að hann fái frí næstu helgi... krossa fingur.
Ætlum svo að kíkja á eitt hús annað kvöld og vonum bara að við fáum það, það eru nefnilega tugir umsækjenda um eitt hús.... við komum víst á versta tíma hvað þetta varðar.
Jæja krossið fingur fyrir okkur :-)
þriðjudagur, júlí 27, 2004
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)