sunnudagur, desember 26, 2004

GLEÐILEG JÓL.....

.... allir saman! Við höfðum það svakalega gott um jólin. Kalkúnninn heppnaðist vel og sósan og allt og rauðvínið var gott og Nína Berglind var bara ótrúlega róleg og sat nánast í gegnum borðhaldið :) fékk að opna einn pakka á meðan við gengum frá og höfðum til eftirréttinn (Sigtryggur var reyndar enn að borða því eins og allir vita er hann lengur en meðaljón að borða og ég fljótari!!) Svo var bara sest niður og Nína Berglind sá um að sækja pakkana og opna þá fyrir okkur líka og ég þakkaði Guði fyrir að það voru ekki fleiri pakkar í þetta skiptið. Nína Berglind fékk litla tölvu sem er þroskaleikfang og eru þau strax farin að slást um það feðginin hver fær að leika sér með hana! Spurning hver er að þroskast? Ég fékk þennan svaka fína og mjúka slopp sem mér finnst mjög leiðinlegt að geta ekki tekið með mér til Íslands.... en svo fékk ég líka tvær bækur í bókaröðinni um No.1 Ladies Detective Agency sem eru alveg yndislegar (takk fyrir Soffía að benda mér á hana). Hlökkum til að halda litlu jólin á Fróni áður en langt um líður. Er einmitt að eyða tímanum núna því klukkan er bara sex og ég vaknaði fyrir ca. hálftíma síðan en við eigum ekki að mæta útá flugvöll fyrr en átta.... svona er maður spenntur eins og börnin á jólunum :) En það er ágætt að byrja að snúa tímanum við í rólegheitunum þar sem það er átta tíma munur.

föstudagur, desember 17, 2004

Stutt í jólin :)

Ætla aldrei að kvarta yfir ruslpósti heima aftur. Hér er alltaf mikill ruslpóstur en í tilefni jólanna var ákveðið að allir skyldu eiga sinn eigin regnskóg og við höfum ekki undan að tæma póstkassann. Svo er maður nú einu sinni Íslendingur og verður að lesa í gegnum þetta allt til að vera örugglega viss um að missa ekki af einhverju stórkostlegu tilboði...... Það er líka eins og íbúafjöldinn í Kamloops hafi aukist um 100% því nú er umferðin svipuð og í Reykjavík og jafnerfitt að finna bílastæði og að troðast um í búðunum. Ég er svooooo fegin að vera nánast búin að öllu og ef það er eitthvað sem ég á eftir er ég svo heppin að geta farið fyrir tíu á morgnana.

Þar sem ég var í mollinu í morgun ákvað ég að setja Nínu Berglindi í klippingu. Gekk rosalega vel og hún sofnaði næstum í stólnum eins og venjuleg börn!!!! (var frekar hissa á þessu þar sem hún sofnar aldrei fyrr en hún er búin með batteríin) Eftir klippinguna var auðvitað blásið á henni hárið og sett glimmersprey a l´america. Hafði ekki hjarta í mér að segja hárgreiðslukonunni að við værum að fara í sund þar sem henni fannst svo gaman að dúlla við hana :)

mánudagur, desember 13, 2004

Jólarokk

Þvílíkt stuð var í gærkveldi í Christmas party BCLC.... góður matur, dansað og dansað.... var soldil ´89 stemmning í salnum "Hammer Time", "Funky Called Medina" og ég veit ekki hvað og hvað... hver man ekki eftir þessum hittum? Skemmtilegast var að fólk var alls ekki feimið við að fara á dansgólfið eins og heima á Íslandi þar sem fólk þarf að vera búið að fá sér allavega fimm GogT áður en þeir hreyfa stóru tá. Leiðinlegast var að annaðhvert lag var kántrí og það er ekki hægt að dansa við það nema línudans eða twostepp.
Það var svo auðvitað frekar leiðinlegt að þurfa að fara og sækja Nínu Berglindi fyrir miðnætti... væri gott að hafa næturpössun af og til eða allavega til eitt am!!

Svo vaknaði ég við sírenuvæl klukkan fimm í morgun og varð alveg snælduvitlaus... samdi þvílíka ritgerð í huganum um hvað það er fáránlegt að nota sírenur um miðja nótt í Kamloops þar sem allir vita að er ekki nokkur maður á ferli á þessum tíma nema maðurinn með sírenuna :/

Í morgun vöknuðum við svo hress og tilbúin til að fara með Nínu Berglindi á ballettsýninguna hennar. Héldum kannski að hún yrði ekkert alltof hress að láta alla horfa á sig og færi öll inní sig eins og hún hefur gert áður þegar hún þarf að sýna eitthvað en hún var þessi líka stjarna. Ekkert mál að fara frá mömmu og pabba og bíða baksviðs í hálftíma... nema hún gleymdi að biðja um að fara á klósettið og var því í spreng alla sýninguna en verandi professional dansari þá kláraði hún sitt og fór svo með mömmu á klósettið eftirá :)

Settum inn myndir og videó frá sýningunni og partýinu.

fimmtudagur, desember 09, 2004

Fyrsta snjóbrettaferðin

Þá er fyrsta snjóbrettadegi lokið. Fórum upp í Sun Peaks á sunnudaginn til að prufa nýju snjóbrettin. Það var tekin sú ákvörðun að vera með ekki neinn aumingjaskap og því skelltum við okkur bara strax í almennilega brekku. Ég held að maður læri mest á því. Alla veganna lærði ég að detta á ýmsan hátt. Ég vissi ekki einu sinni að það væri hægt að detta á svona marga vegu. Þetta var samt ótrúlega gaman og stefnan er að fara aftur sem fyrst enda líkaminn alveg að fara að jafna sig.

þriðjudagur, desember 07, 2004

CSI: Kamloops

Það er ótrúlegt hvað gerist í svona smábæjum útá landi í Kanada. Vinir okkar áttu hús hinum megin við ánna og eru nýbúin að selja og flutt annað (sem betur fer segi ég nú bara). Þau leigðu þar út kjallaraíbúðina en voru að henda leigjendunum út af því þau skulduðu leigu. Daginn sem þau áttu að afhenda íbúðina vorum við að hjálpa þeim að flytja og þrífa og svona og húsfrúin ákvað að kíkja niður í kjallara og athuga hvort þau væru ekki að fara að koma sér út en þá var bara rétt byrjað að pakka og allt skítugt. Daginn eftir hafði ekki spurst til þeirra og þess vegna þurftu þau að hóa saman helling af liði til að pakka afganginum af dótinu þeirra, flytja það í geymslu og þrífa. Haldið þið ekki að í dag hafi það verið í fréttunum að konan sem leigði hjá þeim hafi verið barin til dauða af tveimur mönnum......ég á ekki til eitt aukatekið orð.... aumingja konan, hræðilegur dauðdagi, get ekki sagt neitt annað. Svo er spurning hvort við höfum eyðilagt "the crime scene"!!! Bíð eftir að Grissom banki uppá til að fá fingraför og DNA sýni :/

föstudagur, desember 03, 2004

Sveinki Trump

Skelltum okkur í Santa´s parade síðustu helgi og fengum þetta líka fína veður - smá kuldi - en þurftum að standa ansi lengi til að fá að sjá Sveinka sjálfan. Fyrst var óendanleg röð af alls konar fólki að auglýsa sinn bissness og troða sælgæti í börnin... og að lokum kom sveinki í allri sinni dýrð í kastalanum sínum (!) og það varði í 5 sekúndur en við vorum fegin því á þeirri stundu vorum við tilbúin að stökkva í eldhraun til að hlýja okkur :/
Fórum svo í barnaafmæli til Ainsley vinkonu hennar Nínu Berglindar og það var rosa stuð. Að því loknu var ákveðið að skella sér í Aberdeen Mall til að freista þess að hitta sveinka aftur til að ná eins og einni mynd af karlinum með litlunni, þó það hafi þýtt að standa í biðröð í klukkutíma með fullt af ótrúlega þægum og þolinmóðum börnum. Nína Berglind hafði hitt hann fyrir utan þegar hann kom akandi að í limósínunni sinni (!) eftir að hafa lent í Kamloops í þyrlunni sinni (!) og hann var svo góður við hana og knúsaði hana í bak og fyrir - sem betur fer því þegar röðin kom að henni að setjast í fangið á honum að spjalla stökk hún til hans og þurfti ekkert á mömmu sinni eða pabba að halda :) og við fengum þessa fínu mynd af þeim saman til að minnast amerísku jólanna okkar.

fimmtudagur, desember 02, 2004

Afmæli + kúreka jól

Hún Regína á afmæli 2.desember og vill ég byrja á því að óska henni til hamingju með daginn. Það verður farið út að borða um kvöldið til að fagna afmælinu. Veit alla vegna um einn góðan stað sem Regína hefur ekki farið á en það eru nú ekki margir staðir sem við eigum eftir að prófa.
Við höfum ákveðið að vera yfir jólin hér í Kamloops og komum heim til Íslands morguninn 27.desember. Það verður gaman að hitta aftur fjölskylduna og vinina. Ekki skemmir fyrir að það bíður Dallas pakki eftir manni um áramótin.
Í tilefni af kúreka jólunum hér í Kamloops þá fékk ég mér tvo jóladiska, einn með Johnny Cash og hinn með John Denver. Þeir hafa fengið það hlutverk að koma mér í jólaskapið.

miðvikudagur, nóvember 24, 2004

Ása týnd og tröllum gefin...

...hlaut að koma að því. (Ása er dúkkan hennar Nínu Berglindar sem fór útum allt með henni frá því hún fæddist og var búin að fara nokkrum sinnum í þvottavélina til að hún myndi ekki valda sjúkdómafaraldri heima og svo framvegis...) Erum búin að leita dyrum og dyngjum að henni og spyrjast fyrir en enginn veit hvar hún er... hugsa að við foreldrarnir séum meira miður okkar en Nína Berglind sem var við það að missa áhugann á henni og virðist ekki kippa sér upp við að sofa með Ella elg í staðinn :) Hefði verið gaman að eiga hana og ramma hana inn fyrir Nínu svo hún gæti sýnt vinum sínum hana á unglingsárunum... (veit ekki alveg í hvaða heimi við lifum) en það eru til fullt af myndum af henni svo....
Nóg um það, erum mjög glöð að tilkynna að það er búið að panta far fyrir okkur heim milli jóla og nýárs og hlökkum við mikið til... erum menningarlega að svelta hérna :/ Sigtryggur verður í tvær og hálfa viku en við mæðgur í heilan mánuð... júhú!! leggjum af stað 26. des og verðum komin heim eldsnemma 27. des svo við poppum næstum beint inní árshátíð saumó...meira júhú!!
Talandi um menningu þá langar okkur að skella okkur í leikhús þegar við komum heim... einhverjar uppástungur? Mig langar mikið til að sjá "Þetta er allt að koma" en er tilbúin að skoða aðrar hugmyndir ef fólk hefur sterkar skoðanir á þessu :)
En það verður nú "Santa´s parade" á laugardaginn og svo teknar myndir af börnunum með sveinka í kringlunni á eftir og mikið gaman fyrir stubbana. Vona bara að það verði ekki of kalt en það snjóaði í fyrsta sinn hér niðrí bæ í gær og allt þakið snjó... kvarta ekki á meðan það verður ekki 15° frost eins og heima :/ Allt komið í jólagírinn hérna. Er búin að vera að hlusta á jólalög í meira en mánuð og búin að afgreiða nánast allar jólagjafirnar og þær komnar á klakann og föndra jólakortin og skrifa þau svo nú er bara að senda þau og byrja að baka með litlunni... núna fær hún að skreyta allar piparkökurnar... ætlum meira að segja að kaupa jólatré eftir sirka tvær vikur svo við getum notið þess áður en við höldum heim... jólaljós, jólaljós hátíð í bæ..... tralalala

föstudagur, nóvember 12, 2004

Long time no blog...

... en svona er þetta bara. Rosalega gaman í Chicago og fyrir þá sem ekki eru búnir að frétta það þá varð Chicago allt í einu borg elskendanna í vestri... Sigtryggur ákvað að biðja mín sem ég var auðvitað mjög ánægð með og sagði já... og allt komið á fullt í planeringum :)
Núna er líka verið að plana frí á heimaslóðir sem verður ekki leiðinlegt....

Annars hér fullt af Íslendingum eina ferðina enn og alltaf gaman að fá nýtt fólk til Kamloops... svo maður geti nú sýnt þeim "herlegheitin"!

Aðalmálið er nú samt að það er rétt rúm vika í að Sun Peaks opnar og við erum komin með snowboardin í hús og getum ekki beðið eftir að fá rasssæri :/

Nína Berglind er svo byrjuð að æfa fyrir jólaballettsýninguna og ég vona bara að hún verði ekki súperfeimin á sýningardaginn..... en ég stefni að því að taka upp generalprufuna svo fólkið heima geti séð ;)

Að lokum eru komin inn nokkur ný videó fyrir þá sem geta séð þau...

mánudagur, nóvember 08, 2004

Dallas Reunion

Átti góða kvöldstund fyrir framan sjónvarpið að horfa á Dallas Reunion þáttinn. Allar helstu stjörnurnar komu fram: Larry Hagman, Patrick Duffy og Linda Gray voru á staðnum ásamt fleirum. Verið að rifja upp allt það helsta sem gerðist í þáttaröðinni, viðtal við leikara o.fl. Þessi þáttur sannfærði mig enn þá meira að J.R. Ewing er flottastur. Þetta er skyldu áhorf fyrir Dallas menn.

miðvikudagur, nóvember 03, 2004

Komin heim

Nú erum við komin heim eftir ferðalag okkar til Vancouver og Chicago. Gistum 2 daga í Vancouver og náðum að skoða hluta af borginni en mikið er eftir. Það var farið í Sædýrasafnið, Stanley park, Science Museum og labbað um downtown Vancouver. Á rölti okkar um Stanley park rákumst við á Helga, Guðrúnu og son þeirra Ólaf en þau bjuggu í Vancouver í 8 ár og voru að heimsækja borgina sína. Fórum út að borða með þeim um kvöldið og áttum góða kvöldstund. Síðan var ferðinni haldið til Seattle. Við ákváðum að fara keyrandi á Big White og þegar við komum að landamærunum þá lentum við líka á þessum hressa landamæraverði. Rosalega hljóta þeir að skemmta sér í vinnunni, eennnnúúú. Töluðum við nokkra verði áður en við komumst í gegn og ekki eitt bros allan tímann. Þegar við nálguðumst vöggu grunge-ins þá var ákveðið að athuga útvarpsstöðvarnar og auðvitað var Nirvana á fóninum. Svo það var bara tjúnað í botn og þotið að flugvellinum til að ná fluginu til Chicago.
Í Chicago tóku Jóhann Dal og Isabella á móti okkur. Þau eru höfðingjar heim að sækja. Jóhann guidaði okkur um borgina eins og hann hefði aldrei gert neitt annað. Ef einhver er á leiðinni til Chicago þá mælum við með veitingastaðnum Topo Gigios... vinsæll hjá mörgum stjörnum eins og t.d. Seinfeld. Einnig fórum við tvisvar á Green Mill sem er elsti jazzbar Bandaríkjanna og á sínum tíma vöndu Al Capone og Charlie Chaplin komu sína á þennan stað. Þar hlustuðum við á Kurt Elling og Michal Urbaniak. Það var virkilega gaman að fara þangað því þetta er staður með sál. Þarna rættist gamall draumur hjá mér.
Síðasta helgi var halloween helgi svo við skelltum okkur til Hrannar frænku hennar Regínu í úthverfi Chicago til að leyfa Nínu Berglindi að prufa "trick or treat". Hún skemmti sér mjög vel og náði að fylla pokann sinn af nammi sem hún gaf svo pabba sínum :)
Þegar þessu ferðalagi var lokið þá keyrðum við í einum rikk á highwayinum frá Seattle til Kamloops syngjandi lag eftir David Brent.
"Free love on free love freeway
the love is free and the freeways long
I got some
hot love on a hot love highway"

Það eru komnar inn myndir frá ferðinni í Október möppuna.

fimmtudagur, október 21, 2004

Frávita forseti...

...frávita kjósendur, stórþjóð á barmi taugaáfalls. Sjónvarpið gerir alla vænisjúka og mig líka... þessi einu sinni sallarólega unga kona er að breytast í frávita húsmóður! Það er einhver huggun að vera réttu megin við landamærin eins og ég er farin að kalla það og ég viðurkenni að ég er soldið stressuð að krossa yfir í næstu viku en það er huggun í því að vera komin "heim" aftur fyrir kosningar...
En á jákvæðari nótum þá hlakka ég mikið til að keyra til Vanouver í fyrramálið... margir sem segja að það sé ein fallegasta borg í heimi... ekki amalegt það.... svo er aldrei að vita nema við rekumst á eitt stykki björn á leiðinni... það eru allir að segja við okkur "jú þið fáið að sjá björn þeir eru útum allt núna, það var einn í bakgarðinum hjá mér í gær" .. en við sjáum aldrei neinn... fórum meira að segja á bjarnarrúnt um daginn árangurslaust.
Hlakka líka mikið til að hitta fjölskylduna sem ég á í Bandaríkjunum og fara "trick or treatin´" með Nínu Berglindi á Halloween... kann ekki mörg trick svo ég vona að við fáum mikið af treatum!
Við biðjum bara að heilsa í bili... þessi fjölskylda er farin í frí :)

sunnudagur, október 17, 2004

Nú mætti gashitarinn fara að virka

Nú er haustið formlega komið, gerðist eiginlega bara í gær. Farið að vera undir 15° meirihluta dagsins og létt rigning af og til. Frekar notalegt að fá haustið svona í rólegheitunum en ekki með hávaðaroki og rigningu eins og heima :/
Erum búin að hafa það bara nokkuð gott um helgina. Ég fór óvænt á djammið á föstudagskvöld og það var bara rosalega gaman (gaman að rekast á fólk sem maður kannast við inná stöðunum).... á laugardaginn byrjuðum við á að fara í afmæli til Sierru vinkonu hennar Nínu Berglindar og svo fóru konurnar í "Babyshower" fyrir Moniku (maðurinn hennar vinnur hjá lotterí hér í bæ eins og svo margir aðrir). Ég bjóst við að þetta yrði eitthvað hræðilega væmið og var búin að búa mig undir það en svo var þetta bara mjög gaman. Held að það væri alveg hægt að taka þetta upp heima á Íslandi og ánægðastir yrðu karlarnir... að losna við að hlusta á endalausar fæðingasögur og brjóstagjafasögur og svo framvegis..... það var farið líka í nokkra létta leiki, borðað og svo fékk nýbakaða barnið auðvitað fullt af gjöfum :) Eftir sturtuna skelltum við okkur á go-kart braut með softball liðinu okkar góða og Sigtryggur sló í gegn á venjulegu bílunum (hann er svo mikil hetja þessi elska) áður en einhver ákvað að hægja á bílnum hans... meiri vitleysan... svo fóru aðrir á power go-kart og það er greinilega skemmtilegra því þeir fara náttúrulega miklu hraðar. Ætlaði að fara með Nínu Berglindi á tvöfaldan og var búin að borga og allt... sem tók sinn tíma því blessaði gaurinn sem var að vinna þarna gat ekki litið uppúr tölvuleiknum sem hann var að spila.. þegar ég kom út var bara einn tvöfaldur bíll til og hann var upptekin... svo ég fer inn aftur og reyni að ná athygli mannsins frá fótboltaleik í þetta sinn og segi honum að ég vilji bara fá endurgreitt..."nei, nei þú ferð bara þegar hinir eru búnir!" þá fauk í mig eins og mín er von og vísa og ég hellti mér aðeins yfir hann og sagði ".. dettur þér virkilega í hug að ég ætli að hanga hér í 80 mínútur með þriggja ára barn og fara svo ein útá brautina... í myrkri...???" ".. ok en ef þú vilt fá endurgreitt þá verðurðu að bíða eftir konunni minni því ég kann ekki á kassann!!!" Sumt fólk er bara ekki að nenna vinnunni sinni!!!! Sem betur fer þurfti ég ekki að bíða lengi eftir konunni hans.... og hún greyið var svo heillengi að finna útúr því hvað hann hefði gert á kassanum og hvað hann hefði rukkað mig um mikinn pening....
Ætluðum svo að fara í softball partí á eftir en ég og Nína Berglind vorum alveg að verða búnar á því svo við fórum heim og Sigtryggur heim til Chris að spila Doom eða eitthvað álíka huggulegt.
Í dag á svo að gera tilraun til að fara í bíó með frumburðinn ... í þriðja sinn á hennar stuttu ævi... alltaf að gera eina tilraun á ári þar til hún situr kyrr allan tímann... félagsmótun á háu stigi.... Hún er líka orðin meiri sjónvarpsglápari svo það er aldrei að vita... 7 9 13

miðvikudagur, október 13, 2004

Video

Erum búin að bæta við Video-um af Kamloops fjöldskyldunni sem hægt er að nálgast hægra megin á síðunni. Sum video eru nokkuð stór en þar sem flestir íslendingar eru komnir með ADSL þá ætti það ekki að stöðva ykkur.
Annars er Regína byrjuð að plana ferðina okkar til Vancouver. Ég hlakka til að fara þangað því fólk sem ég hef talað við segir að hún er falleg borg og mikið að sjá. Einnig ætlum við að fara í verslunarleiðangur þar. Búðirnar hérna hafa ekki mikið úrval og ég veit að Regína verður virkilega ánægð ef við gætum komist í IKEA búð í leiðinnni :) Það var keypt "Coupon" bók um daginn þar sem við eigum að geta fengið hina ýmsu afslætti í búðum, veitingastöðum og hótelum. Sé fram á að við getum sparað okkur góðann pening á hótelafsláttunum.
Nú er bara að finna tíma fyrir ferðalagið.

þriðjudagur, október 12, 2004

Þakkargjörð

Fengum okkar fyrsta þakkargjörðarkalkún í gærkvöldi, hann var mjög góður og þetta var skemmtilegt af því það er ekki mikið um hátíðleg kvöldverðarboð hérna... en ég er ekki enn búin að ná því um hvað þessi hátíð snýst. Það var aðallega verið að grínast með það að Kanadabúar taka sér annarra þjóða hátíðisdaga til að geta fengið frí í vinnunni... svo vonandi kemst ég að meiru þegar ég fer yfir til Bandaríkjanna og fæ þakkargjörðarmáltíð þar :) Svo var líka verið að gera grín að veiðimönnum sem klæða sig upp í "camouflage", setja á sig "night vision goggles" og vefja um sig skotbeltum til að veiða hátíðarkalkúninn þegar varnarmekanísmi greyið fuglanna er að standa kyrr....
Fengum svo pumpkin pie í eftirrétt. Mér hefur alltaf fundist allir sem hafa smakkað svona tala um að þetta sé ekki gott og væri bara borðað útaf hefðinni svona eins og rjúpurnar heima...hahaha!!! En þetta var bara mjög gott, minnti soldið á epla pie en ekki eins sætt...
Eftir matinn var svo spilað Trivial Pursuit - sem, fyrir þá sem ekki vita, var "fundið upp" í Kanada... við stóðum okkur nú ekkert sérstaklega vel Íslendingarnir og ekki að furða þar sem enginn virðist vita mikið um Kanada hvort sem þeir eru Kanadabúar eða ekki!(....þetta er nú kannski soldið fyrir neðan beltisstað biðst afsökunar fyrirfram ef einhver frá Kanada er að lesa þetta og skilur íslensku).

fimmtudagur, október 07, 2004

Lögregluvangeta

Gleymdi alveg að minnast á handtökuna sem við urðum vitni að um daginn!! Nína Berglind fór í pössun á North Shore sem er álitið svona slæmt hverfi hér í bæ en er samt ekkert svoooo hræðilegt.... við skelltum okkur út að borða tvö og í bíó sem hefur ekki gerst síðan síðasta vor held ég.... það var gaman - fórum á Bourne Supremacy sem var allt í lagi.. fín spennumynd - ég nagaði allavega af allt skinnið innan á vörunum..... Svo þegar við vorum að sækja litluna sáum við lögreglubíl fyrir utan húsið sem Gloria - sem var að passa - á heima í og ég fékk hland fyrir hjartað verandi í Ameríku og svona þið skiljið... svo sáum við fyrir framan lögreglubílinn lögreglumann ofan á "..hinum grunaða" að reyna að setja hann í handplast en var ekki að meika það og hann var líka bara einn... við algerar skræfur hlupum bara inn í húsið og vonuðum að það kæmu fleiri lögreglumenn til aðstoðar.... sem og gerðu og allt í einu voru fimm vopnaðir lögreglumenn og einn borgari sem birtist uppúr þurru að reyna að setja einn gaur í annarlegu ástandi í handplast.... og það tókst á endanum sem betur fer... á meðan horfðum við á atganginn út um gluggann. Nína Berglind var heil á húfi og Gloria líka svo ég var glöð....

miðvikudagur, október 06, 2004

Gestabók

Halló halló allir saman... ef þið viljið skrifa í gestabók þá er hún í myndaalbúminu... fæ kannski Sidda sæta til að setja link á forsíðuna. Alltaf gaman að sjá hverjir eru að kíkja á síðuna :)

Tengdamamma og mágkonur mínar eru svo að fara til Barcelona eftir viku og væri ég auðvitað að fara með ef ég væri ekki hinum megin á hnettinum!! Vona bara og veit að þær skemmta sér vel og ekki spillir fyrir að ein þeirra bjó í Barcelona og þekkir því borgina vel.... Vona líka að þær hugsi til mín og sakni mín á meðan.... Ég á góðar minningar frá Barcelona sem ég get yljað mér við í staðinn :)

Bye for now

þriðjudagur, október 05, 2004

BallBusters

Kepptum á okkar fyrsta softball móti um helgina og stóðum okkur eins og hetjur bara. Ég er farin að ná tökum á þessu akkúrat þegar seasonið er búið... kannski verð ég hérna þegar vordeildin fer af stað aldrei að vita.
Urðum í öðru sæti í okkar riðli sem er neðsti riðillinn en það skiptir mestu máli að taka þátt og skemmta sér er það ekki? Fengum peningaverðlaun (sem breyttust fljótt í bjór) og boli sem voru bara í X-large svo það var eins og ég væri ekki í neinum buxum og allir þurftu að minnast á það:|
Ég er allavega orðin mjög hrifin af þessu sporti og gæti vel hugsað mér að flytja það heim, það geta allir verið með konur, karlar, ömmur, afar og svo framvegis. Alvöru fjölskyldusport....

Veðrið var líka alveg geggjað sól og 20°hiti, að minnsta kosti eftir hádegi. Spiluðum einn leik klukkan 8.00 á sunnudags-morguninn og þá var ekki alveg stuttbuxnaveður en samt í lagi. Það bjargaði náttúrulega alveg málunum að Savannah vinkona hennar Nínu Berglindar var á staðnum svo þær léku sér bara á meðan við lékum okkur :) Svo er skrokkurinn eitthvað í ólagi í dag gat varla gengið (spurning hvort það sé aldurinn sem er að segja til sín eða eitthvað annað) en það jafnaði sig eftir nokkrar sundferðir og gufu...

Bestu fréttirnar eru svo að Tryggingamiðstöðin ætlar að borga tjónið sem við urðum fyrir í London útá kortatrygginguna:) Ekkert vesen og verið að fela sig á bak við smáa letrið eins og blessaða tryggingafélagið okkar gerði. Við erum í sjöunda og getum farið að kaupa okkur vetrarföt, júhúú!!!

laugardagur, október 02, 2004

Nýjar myndir og Rogers leaving me moneyless

Loksins eru komnar nýjar myndir inn á vefinn. Ferðalagið um Rocky Mountains og afmælið hennar litlu og fleira.... endilega kíkið.

Annars vorum við að uppgötva að það er alltaf verið að plokka peninga af okkur!!! Var að kíkja á símreikninginn okkar Sigtryggs fyrir GSM símana og hann er himinhár.... fór og talaði við karlinn hjá Rogers Wireless sem seldi mér símana og planið sem við erum með og langaði mest að slá hann utanundir þegar hann sagði að við værum að borga 30 sent eða 17 krónur á mínútuna ef við erum í símanum hvort sem við hringjum eða einhver annar.... sem sagt ef við tölum í símann við einhvern annan en hvort annað þá erum við að borga þetta á mínútuna... svo ég bið ykkur sem hringið vinsamlegast að hringja í heimasímann okkar - plís. Þetta á líka við um símakortin sem ég var svo ánægð með ekki alls fyrir löngu... meira plokkið. Svo var einhver kona við hliðina á mér sem fannst hún endilega þurfa að commenta á allt sem hinn elskulegi Bryce sagði við mig eins og "... to many I love you´s, dear" og ".. stick to the limit dear.." hvað er fólk að skipta sér af því sem því kemur ekki við.... daaahhh

Duttum soldið niður í heimþrá fyrir helgina en náðum að tala okkur saman uppúr því og skelltum okkur svo í póker í gærkvöldi. Ég spilaði ekki en Sigtryggur fór á kostum og náði að vinna innborgun á símreikninginn :) En ég var að fylgjast með og læra svo ég spila kannski næst, þau spila á þriggja vikna fresti og eru með alvöru pokerchips og svona. Ég þarf bara að æfa pókerface-ið mitt því ég hef aldrei verið góð að halda andlitinu.....

Næst á dagskrá er svo að ég er að fara í magadans með Lauru og mágkonu hennar, Corrine. Það gæti verið gaman, ég missti nefnilega af pilates tímunum og næsta holl byrjar ekki fyrr en í nóvember - og ég er búin að kaupa mér almennilegan sundbol svo ég get farið að synda líka...

miðvikudagur, september 29, 2004

Afmælisstelpa

Þá er það búið afmælið hennar Nínu og gekk bara vel. Takk kærlega fyrir allar gjafirnar að heiman :)

Við bjuggum náttúrulega til alltof mikinn mat og erum enn að narta í afgangana, erum vön að hafa þrisvar sinnum fleiri gesti... Hún fékk vinkonur sínar af leikskólanum í heimsókn og þær léku sér inni með allt dótið sem hún fékk en fullorðna fólkið sat úti í sólinni. Það er búið að vera alveg frábært veður, sól og 15-20° hiti alveg akkúrat fyrir mig :) Eftir afmælið fórum við á softball leik með liðinu í vinnunni hans Sigtryggs. Sigtryggur sló í gegn og er orðin virtur meðlimur á meðan ég sem hef ekki staðið mig nógu vel er notuð þegar vantar stelpur í liðið - það verða nefnilega að vera 4 stelpur í liði til að það megi keppa. En þetta er skemmtilegt og allir hvetja mann áfram þó maður hvorki hitti boltann né grípi hann :) mér líður stundum eins og persónu úr teiknimyndunum um Kalla Bjarna! Það verður mót um helgina og aldrei að vita nema maður fái að taka í eina kylfu eða svo.....

Við gáfum svo Nínu Berglindi lítið hjól með hjálpardekkjum í afmælisgjöf og hún er bara að standa sig eins og hetja á því. Vonandi fáið þið að sjá myndir af henni fljótlega á fartinni....
Hún er líka orðin dugleg í ballettinum, í fyrsta tímanum þurfti ég að dansa meira en helminginn af tímanum með litlu stelpunum en slapp í dag :D Það er stepp í hálftíma og svo ballett í hálftíma og henni finnst rosalega gaman. Hún er líka orðin hressari í sundinu og ég get skroppið frá á meðan og synt nokkrar ferðir - (eða ég gæti það ef ég hefði ekki gleymt sundbolnum heima og toppurinn sem ég er í er ekki beint gerður til að halda "my bossom" á sínum stað...haha svo ég syndi bara baksund þangað til ég finn almennilegan sundbol hérna!)

Svo er náttúrulega aðalfréttin að snúllan hætti uppá eigin spýtur að nota dudduna!!! Við vorum að búa okkur undir stríð á afmælisdaginn hennar en tveim dögum áður hætti hún bara að nota hana og hefur varla minnst á duddur síðan :) Við erum auðvitað í skýjunum en hún er aðeins að herma eftir vinkonu sinni henni Sierru sem hefur aldrei notað duddur heldur sýgur bara þumalinn..... En Nína Berglind reynir aftur á móti að troða allri hendinni uppí sig svo það er ekki eins sætt :D

miðvikudagur, september 22, 2004

"Rocky Mountain High"

Tatara... loksins komin með skrifborð :) var orðið frekar leiðinlegt að sitja alltaf á gólfinu og reyna að gera eitthvað í tölvunni - komin með talsvert sigg á olnbogana líka.
Ætlum að halda uppá afmælið hennar litlu á sunnudaginn - það verður allavega ekki eins fjölmennt og síðastliðin afmæli hjá henni!!! Minni vinna fyrir okkur :)
Hún er búin að biðja um bangsímon hjól í afmælisgjöf og ætli við verðum ekki við því, erum helst að velta fyrir okkur hvort hún sé orðin nógu stór til að fara á lítið hjól með hjálpardekkjum eða hvort þríhjól sé ekki bara nóg fyrir hana... einhver comment?
Svo byrjar hún í ballett í fyrramálið og er búin að vera að æfa sig talsvert - alger rúsína tekur þessu svo alvarlega :) (minnir kannski á einhvern?!)
Skelltum okkur í "smá" -bíltúr um helgina. Keyrðum alla leið að Lake Louise sem er í klettafjöllunum "Rocky Mountains" og gistum þar eina nótt og keyrðum svo til Banff sem er þekktur bær hjá skíðafólki. Rosalega fallegt þarna og gaman að róa í rólegheitunum á kanó og drekka heitt kakó því það var orðið ansi kalt svona hátt uppi - ætli við höfum ekki verið 1000 m.y.s. eða meira. Gistum á Paradise Lodge sem er sveitalegt og kósý og gætum vel hugsað okkur að leigja kofa þarna síðar meir. Svo vorum við stoppuð á leiðinni heim fyrir of hraðan akstur og hann var svona hrikalega alminnilegur mounty-inn að gefa okkur bara aðvörun. Hann var nú ekki í rauðum jakka með brúnan hatt og á hestbaki eins og ég ímyndaði mér að þeir væru :) Það verður ekki tekið af Kanadabúum að þeir eru kurteisasta þjóð í heimi - ekki svo leiðinleg steríótýpa það.
Svo erum við búin að kaupa okkur passa til að geta stundað snjóbretti af ákafa í Sun Peaks... get varla beðið :/

mánudagur, september 13, 2004

Orkuhelgi

Það var ansi mikið gert um helgina og langt síðan við höfum dúllað okkur svona sem fjölskylda. Við fórum á Laugardaginn í Wells Grey Park sem er ca. 1 og 1/2 tíma keyrsla norður af Kamloops. Það er mjög stór þjóðgarður og við skoðuðum nokkra fossa og einn gamlan bóndabæ eða Homestead eins og það er kallað hér þar sem frumbyggjar (aðrir en indíánar) bjuggu. Við þurftum að ganga svolítinn spöl til að komast að húsinu og hálfa leiðina byrjaði að rigna soldið og svo heyrðum við bara geðveikan nið og svo dembdi yfir okkur þessi þvílíka rigning og aumingja Nína Berglind varð svo hrædd en sem betur fer vorum við nýbúin að kaupa kúrekahatta á okkur öll svo það var allavega einhver þurr blettur á okkur þegar við komum til baka. Þetta var alveg magnað og allir litirnir ýktust einhvernveginn því það var líka sól og mér leið svona eins og við værum ein í heiminum langt frá allri siðmenningu og bara náttúran... var hálfpartinn að vonast eftir að sjá svartan björn því þeir eru algengir á þessum stað en hann kom ekki því miður. Ray Farm er núna orðinn einn af uppáhaldsstöðunum mínum :)
Daginn eftir var ákveðið að skella sér á Jet ski og fundum við eftir mikla leit leigu sem var ennþá opin því það er búið að vera óvenju kalt síðustu þrjár vikur miðað við árstíma. Og það var krúsað um Shuswap vatn þvert og endilangt og Nína Berglind fór með og það var ótrúlega lítið mál en hún var ekkert of hrifin af því að fara 180° beygju !! Við vorum nú aldeilis ekki búin að fá nóg af vatninu eftir klukkutíma svo við ákváðum að leigja okkur lítinn spíttbát líka...... svo ætluðum við að borða á Qaaout Resort sem er byggt á hefðum frumbyggjanna og ætluðum að fá okkur elg í forrétt og vísund í aðallrétt og svona en það var akkúrat að loka þegar við komum svo við verðum að kíkja seinna bara og ég hlakka til :) Alveg að drekka inn alla þessa indánamenningu og líf allra frumbyggja hér.... veit ekki hvort Sigtryggur er eins spenntur fyrir því og ég en hann hefur komið talsvert á óvart malbiksdrengurinn úr vesturbænum......

laugardagur, september 11, 2004

Jæja....

...hafið þið sem lesið þetta reglulega tekið eftir því hvað ég byrja oft að blogga með orðinu jæja?!!! Hvað er málið? Ég er búin að vera að pæla í þessu orði og ég botna ekkert í því hvað það þýðir en því meira sem maður pælir í orðum því minna skilur maður þau er það ekki - á ekki íslenskan að vera gegnsætt tungumál...hmmmmm

En nóg um það ég er allavega búin að fatta þetta núna og batnandi konu er best að lifa:) Við erum að minnsta kosti heil heilsu eftir næturgolfið og það var mjög gaman - er soldið ryðguð og finnst eins og ég hafi sturtað peningunum sem ég eyddi í golfkennsluna á sínum tíma niður á hafsbotn. Það var semsagt sjálflýsandi kúla og holurnar voru sjálflýsandi og flöggin og svo voru allir með allskonar sjálflýsandi dót á sér og þetta var mjög vírað... ætla að sjá hvernig myndirnar koma út og sýni ykkur þær ef það er eitthvað varið í þær. Þetta gekk nú samt ágætlega þar sem spilað var í fjögurra manna liðum og besta höggið gilti svo flestar holurnar voru farnar á fugli eða pari.... en það voru nokkrir sem létu það eftir sér að fara úr fötunum og strípast aðeins á meðan á spilinu stóð en enginn í okkar liði svo við misstum af því stuði:)

Annars frábært veður og við ætlum að skella okkur í fjölskylduferð útí sveit að elta gamla geit.....

þriðjudagur, september 07, 2004

Tölvuvírus og Ikea

Jæja þá er ég orðin gráhærð.... blessuð tölvan er að gera mig vitlausa því það er einhver vírus í henni og Sigtryggur þarf að setja hana upp aftur - ég fékk allavega skýrt nei að ég gæti það ekki því ég er ekki töluvnörd!
Annars er ég byrjuð á ljósmyndanámskeiðinu og er strax búin að læra heilan helling og hlakka til að halda áfram, svo er ég á fullu í leikfiminni og er öll að koma til bara - líkamlega sko, var farin að fá alls konar krampa og vesen eins og ég fæ þegar ég hreyfi mig ekki í langan tíma. Svo er Helga að fara heim á morgun og það er soldið skrýtið því hún er búin að vera hér í sex vikur.... eigum öll eftir að sakna hennar mikið en það eru enn Íslendingar hér og verða út september en eftir það verðum við bara litla fjölskyldan í góðan tíma :)
Ég er líka byrjuð að plana smá frí fyrir okkur og stefnan er að taka það um miðjan október. Þá verður krúsað yfir landamærin til Seattle og svo flogið til Chicago að heimsækja ættingja sem ég á þar og svo flogið til baka og keyrt upp til Vancouver og kannski gist á Vancouver eyju en þar er víst geggjað flott. Spurning hvort maður stoppi þá ekki í Ikea sem er besta búð í heimi hef ég komist að.... sakna hennar allavega þvílíkt þar sem ég hef þurft að kaupa í búið á hinum ýmsu stöðum og allt frekar ósmart og ekki eins ódýrt og þar - áfram Ikea!

Á föstudagskvöldið ætlum við í næturgolf og það verður áhugavert því golfvöllurinn verður ekki upplýstur og allir verða með glowstick á sér til að fá ekki kúluna í hausinn :) Þá er bara að vona að við fáum barnfóstru því hún Candace sem hefur passað Nínu og Sierru vinkonu hennar er að byrja í háskólanum og hefur sífellt minni tíma til að bjarga okkur fyrir horn......
Allavega ef þið heyrið ekki frá okkur eftir helgi þá höfum við fengið kúlu í hausinnog misst minnið :/

mánudagur, ágúst 30, 2004

Naktar konur

Jæja ég hef aldrei verið eins fegin að sjá nakta konu eins og í dag!!! Ég hef farið á hina ýmsu sundstaði hér og alltaf eru konurnar og stelpurnar að vanda sig við að fela nekt sína... fara í sturtu og sápa sig í sundfötunum og fara svo og þurrka sér í sundfötunum og rembast svo við að klæða sig úr og í með handklæðið vafið um sig og það er ekki nóg að vera komin í nærfötin til að láta handklæðið síga nei heldur verður að vera búið að hylja rass, læri og tækifæri..... en í dag fór ég í leikfimi "at the Y" og þar fór ein kona í sturtu eins og eðlilegt þykir á fróni á meðan nokkrar voru hálftíma lengur en við að baða sig og klæða vegna vandræðagangsins. Ég var orðin hálfsmeyk við að vera allsber í sturtu og klæða Nínu Berglindi líka úr öllu en fyrst þetta þekkist þá held ég áfram að berrassa mig framan í amerísku teprurnar og hananú.....

laugardagur, ágúst 28, 2004

Íslendingabærinn Kamloops

Jæja núna eru staddir 8 Íslendingar í Kamloops, ætli það sé ekki met? Sem verður fljótt slegið því von er á 2 til viðbótar um helgina.... það er verst að við erum ekki með fleiri herbergi því þá gæti þetta verið ágætis kommúna bara.
Annars er eins og sumarið hafi bara gufað upp.... reyndar er ennþá hlýtt en soldið skýjað og bara eins og gott sumar á Íslandi, mér líkar það vel. Er reyndar núna farin að sakna fatanna sem var stolið af okkur í London og verð því að fara að versla en mér hefur bara fundist það frekar leiðinlegt uppá síðkastið....
Önnur kúrekahelgi framundan held ég, ætlum með nýju íslensku stelpurnar á Cactus Jack´s að twosteppa í kvöld og svo á professional rodeo annað kvöld. Nú verðum við að drífa okkur í því að kaupa kúrekahattana :)
Ég er allavega búin að skrá mig á digital ljósmyndanámskeið og photoshop námskeið svo fljótlega verð ég ekki eins háð Sigtryggi með að setja myndirnar á netið og búa til afmæliskort og þvíumlíkt... eitthvað sem ég gæti hæglega gert í dag ef Sigtryggur væri ekki tölvunörd!!!! Ótrúlegt hvað maður getur orðið ósjálfbjarga með hluti ef einhver sér um að gera þá alltaf fyrir mann....

þriðjudagur, ágúst 24, 2004

Rigning og kalt á Hótel Regínu

Loksins get ég farið að vera í buxum og langermabolum og ég er svo ánægð en Sigtryggur ekki..... en það á að fara að létta til og þá verður vonandi ekki aftur eins heitt og hefur verið, góð tilbreyting og dregur úr heimþránni :)
Svo komu fleiri Íslendingar í gær, Árni og Björk, og Hótel Regína opnaði formlega þar sem Árni gistir hjá okkur... það var reyndar svolítið stjórnunarlegt klúður sem olli því að rúmið hans var ekki komið og hann þurfti svo að halda á því uppá þriðju hæð þegar hann var búinn að sækja það (með sigtryggi).... en nú verður bætt úr því.
ciao

Siðprúðir Kanadabúar

Jæja við skelltum okkur í þessa fínu útilegu við Shushwap vatnið um helgina og skemmtum okkur vel á föstudagskvöldið fórum í vatnið og svona og daginn eftir legið á ströndinni og sólað sig, farið á bát og ég og Sigtryggur reyndum að wakeboarda (snowboard á vatni) en Sigtryggur komst ekki í skónna á brettinu og báturinn bilaði alltaf þegar kom að mér svo ég lá í vatninu í fannst mér meira en hálftíma og horfði á skýin hlaðast upp á meðan og var orðin ansi köld þegar ég loksins ákvað að fara uppúr.... en þegar við komum í land var orðið ljóst að við þurftum að fara af tjaldstæðinu vegna hávaða kvöldið áður sem var nú ekki eins og hann gerist verstur á íslenskum tjaldstæðum!!!! En allavega þá fórum við og tjölduðum annarsstaðar og nú var farið að rigna og íslenska stemmningin sveif yfir vötnum en sem betur fer eru há tré hér svo það voru bara strengdir plaststrangar á milli trjánna og við sátum í rólegheitunum undir og borðuðum og fengum okkur bjór svo var bara setið og spjallað og engin tjöld eða tjaldvagnar eða fellihýsi í næsta nágrenni eins og kvöldið áður og allir komnir í rúmið fyrir klukkan tvo. Daginn eftir var svo aftur komið og kvartað yfir hávaða!!! ég var ekki alveg að skilja það því ég sofnaði í fellihýsinu sem var alveg upp við "hávaðann" og börnin sváfu líka þar sallaróleg.... þetta var nú einum of verð ég að segja.... en við sáum allavega leðurblökur sem var gaman og þær flugu næstum á mig sem var líka gaman :)

miðvikudagur, ágúst 18, 2004

Nina Berglind med barn i maganum

Er ad nota timann nuna og blogga medan litla skvisan sefur... alger svefnpurka!!
Vid maedgurnar fengum okkur gongutur eitt kvoldid og Nina Berglind taladi og taladi allan timann og for svo ad tala um ad Elinu Kolfinnu vaeri stundum illt i maganum og ad henni vaeri lika soldid illt i maganum af thvi hun vaeri med barnid hennar Elinar Kolfinnu i maganum :) svo tok hun upp bolinn og gerdi bumbu og sagdi "sjadu eg er med barnid hennar Elinar Kolfinnu i maganum" !!! Veit ekki hvadan hun faer thessa hugmynd en hun er stundum ad tala um eina konuna a leikskolanum heima a Islandi sem er olett... hver veit. En hun for svo aftur ad tala um thetta daginn eftir og syndi pabba sinum barnid i maganum :)

ps. komnar nyjar myndir

Hviti hvalurinn

Jaeja mikid er gott ad vera komin a bil. Ekkert vesen ad tryggja - vorum soldid hissa thar thvi vid erum alls stadar ad ganga a veggi. Vid erum soldid ad storka orlogunum af thvi billinn er hvitur.... fyrsti billinn minn var hvitur -litli sylvester og thad kviknadi i honum, fyrsti billinn hans Sigtryggs var hvitur og thad keyrdi 17 ara gutti i veg fyrir mig og rustadi theim bil og svo keyptum vid okkur thridja hvita bilinn og hann bara var ekki hamingjusamur hja okkur svo.......
Forum og fengum okkur celebration beer i gaerkvoldi audvitad, allt er notad her sem astaeda til ad fa ser bjor. Aetli folk se ekki bara fegid ad thurfa ekki ad vera ad skutla okkur alltaf fram og til baka :)

þriðjudagur, ágúst 17, 2004

Bilamal

Jaeja tha erum vid kannski buin ad kaupa okkur bil. 1995 Nissan Pathfinder, madur verdur ad vera a 4x4 bil herna. Hann er orugglega buinn i astandsskodun nuna og eg er thvi ad bida eftir simtali fra bilasalanum. Talandi um bilasala tha hofum vid lent i nokkrum bilasolumonnum daudans, einn var meira ad segja med gervibrunku og hvittadar tennur..... attum ekki vidskipti vid hann. En vonandi kemur gott utur thessari skodun tha getum vid farid i utileguna um helgina an thess ad eyda formugu i bilaleigubil. Talandi um bilaleigubila tha munadi minnstu ad illa faeri a laugardagskvoldid i partyinu okkar. Bilastaedid er fyrir nedan svalirnar og nokkrar tomar bjorfloskur stodu a golfinu a svolunum og Sigtryggur gekk a eina og hun kastadist nidur af svolunum beint a huddid a fina bilaleigubilnum okkar!!! Eg var akkurat tharna nidri og heyrdi bara gedveikan skell og engin sagdi neitt uppi fyrr en eg kom ut alveg brjalud.... svo fann eg floskuna i gardinum soldid langt i burtu i smalli. Thad kom sem betur fer bara litil rispa a huddid svo vid hofdum ekki miklar ahyggjur af thvi vegna thess ad her vidgengst ordatiltaekid "..don't be gentle if it's a rental.."
Annars bara mikid um eldingar og thrumur og enga rigningu og thar af leidandi mikid af eldum i nagrenninu og engin sol her i dag thvi reykurinn liggur yfir baenum....
svolitid mollulegt loftid en alls ekki obaerilegt...

mánudagur, ágúst 16, 2004

Kureki nordursins

Jaeja hann Sigtryggur minn er aldeilis ad adlagast kurekalifinu her, hann er alveg ad fila kantrytonlistina i botn..... eg er ekki alveg eins hrifin, enntha allavega. Gamli rokkarinn :) en vid heyrum varla neitt annad og ekki nyja tonlist nema kantry. Sjaid thid hann ekki bara fyrir ykkur med kurekahatt a pikkuppnum sinum syngjandi Garth Brooks !! Forum reyndar a rodeo i gaer og thad var gaman, vid Nina lentum naestum i samstudi vid skelfinu lostid ungnaut sem verid var ad snara, okkur var soldid brugdid en sem betur fer var Nina fljot ad na ser. Hun var allavega mjog hrifin af hestunum og kusunum. Nadum nokkrum mjog godum myndum serstaklega af nautareidinni og thar tokst bara einum ad klara timann sem er 8 sekundur.
Sidan keyrdum vid uppi Sun Peaks og aetludum ad fara i lyftunni upp a fjallid og skoda utsynid en her lokar allt klukkan 5 svo vid rett misstum af tvi, typiskt en thad er rosalega fallegt tharna og eg hlakka mikid til ad fara a skidi eda snowboard tharna. Mike er buinn ad lofa ad kenna okkur a snowboard og svo er skidaskoli fyrir 3-5 ara krakka svo vid aettum oll ad vera ordin nokkud god a skidum thegar vid komum heim :)
Jaeja, tharf ad skila bilnum sem vid tokum a leigu yfir helgina um hadegi svo thad er eins gott ad sinna erindum adur...
luv

Dans dans dans dans daaaans

Var svo glod i gaermorgun tegar eg vaknadi tvi tad var skyjad... en var tho soldid eftir mig eftir djammid fra kvoldinu adur..hehemm. langt sidan eg hef farid svona mikid a djammid. tad var rosalega gaman, hittumst herna heima hja okkur Helga, Mike og September, Chris og Laura og svo forum vid stelpurnar med Mike a tjuttid og hinir strakarnir sau um bornin. Thad var dansad fram a raudanott a stad sem heitir Magnum's og tonlistin thar var betri en a stadnum um daginn. Vid forum reyndar fyrst a stad sem heitir Cactus Jack's og er two stepping stadur.. naesti baer vid linudans nema folk dansar i porum!!! svo bara kurekatonlist og bjor og skot engir kokteilar blandadir a theim stad..... vid two steppudum adeins en letum okkur svo hverfa :)
Hitinn for upp i 42 gradur a laugardagseftirmiddaginn og vid erum ekki med loftraestingu en sem betur fer storar svalir sem solin skin eiginlega ekkert a allan daginn. Solin er i bakgardinum allan daginn og thar er ekki haegt ad vera fyrr en hitastigid fer ad laekka sem a ad gerast fljotlega er mer lofad....
Er ad laera a thetta fina enska lyklabord haegt og rolega, Sigtryggur er buinn ad lofa mer islensku lyklabordi fljotlega.

miðvikudagur, ágúst 11, 2004

Heitt og heitara

Jæja þá erum við loksins komin með internettenginu en tölvan lætur á sér standa, vonandi fyrir helgi. Við erum hægt og rólega að koma okkur fyrir og erum komin með nokkrar pönnur og potta og svona það allra helsta í eldhúsið og svo tvo afskaplega ljóta sófa :) annar er eldgamall svefnsófi röndóttur og svei mér ef hann minnir mig ekki á gamla sófasettið úr Borgarnesinu, hinn er einstaklega þægilegur ruggusófi... litla loveseatið okkar en mjög ófagurt - held samt að mamma væri til í það í sveitina.
Annars er soldill Jeddah-fílingur í gangi hérna fyrir þá sem skilja það.... sama eldavélin og ísskápurinn, vond lykt, rosalega heitt úti og bara chillað.... það eru allir svo easygoing hérna að ég á ekki til orð. Hef ekki verið manna best í að biðja fólk um greiða og svona svo ég þarf soldinn tíma að venjast þessu. Núna höfum við ekki bíl því við ákváðum að skila bílaleigubílnum og erum svo að fara að kaupa okkur bíl í vikunni... kannski gamlan pikkupp hver veit það væri náttúrulega alveg til að toppa ameríkuupplifunina :) mig langar helst í gamlan blæjubíl því það er svo heeeeeiiiiittttthh. Er búin að labba með Nínu Berglindi í leikskólann tvo daga í röð og það er talsverður spölur og svo aflíðandi brekka og svo mjög brött og löng brekka (allt uppímóti auðvitað) í 30 stiga hita og ýtandi kerru á undan sér í vonlausum skóm... ég þarf ekki að byrja í leikfimi strax það er nokkuð ljóst :) svo er þetta skómál alveg að gera útaf við mig er orðin of vön að vera í flipfloppum og fæ bara blöðrur undan öllu öðru - er til dæmis núna með blöðru á sitthvorri litlutánni!
Annars buðum við Helgu í mat í kvöld og sátum úti á svölum og það var mjög næs svo hringdi Chris og sagðist vera að fara á ströndina sem er beint á móti húsinu okkar og vildi endilega sækja okkur. Við ákváðum frekar að taka leigubíl og það voru allir frekar hneykslaðir á því og sögðu að við ættum ekki að gera það hér kemur fólk og sækir þig og keyrir þig svo aftur heim.... það er þvílíkt þægilegt að sitja svona á ströndinni þegar sólin er að setjast og finna svalan kvöldvindinn leika um sig aaahhhh. Nína Berglind er búin að finna sér einn til að knúsa - Mike sem vinnur með Sigtryggi, þær eru reyndar allar hrifnar af honum litlurnar og eru því afbrýðissamar og slást um hann.. frekar sætt. Ætlum svo til Mike og September (vinna bæði með Sigtryggi) með Chris og Lauru á fimmtudagskvöldið í BBQ og svo ætlum við að keyra útúr bænum til að horfa á loftsteinaregnið... gerist víst einu sinni á ári í nokkra daga og ég hlakka mikið til. Jæja nóg bloggað í bili svo koma meiri myndir bráðum.
luv

þriðjudagur, ágúst 03, 2004

Stelpukvöld

Skelltum okkur útá lífið á föstudagskvöldið. Það var mjög gaman. Vorum semsagt sjö stelpur og fórum á held ég eina klúbbinn í bænum sem heitir Rivers. Byrjuðum reyndar heima hjá Chris og Lauru og fórum svo á pöbb. Strákarnir ákváðu að skella sér líka og Chris var svo sniðugur að redda pössun fyrir Nínu Berglindi líka. Það var dansað og dansað á Rivers og ég var alveg að verða uppgefin því það er svo langt síðan ég hef reynt eitthvað á mig...... ekki gott. Ætla að skella mér í YMCA & YWCA þar er víst kennt bæði jóga og pilates svo er það í göngufæri frá nýja húsinu - held þetta séu bara örlög.
Hittum svo strákana í mat á Denny's af öllum stöðum klukkan 2 um nóttina og þar var haldið áfram að skralla. Mjög vel heppnað kvöld og Nína Berglind sofnaði held ég bara fyrir tíu sem er nánast met hjá henni.

nú verð ég svo reglulegar á netinu þar sem ég fæ tölvu á morgun og vonandi nettengingu fyrir helgi :-)

Komin með húsnæði

Loksins loksins ... fengum við hús. Fínasta hús mjög nálægt vinnunni hans Sigtryggs. Við flytjum á morgun því við fáum ekki rúmið okkar fyrr en þá :) Við erum í skýjunum og getum ekki beðið eftir að bjóða fólki í fyrsta BBQ'ið. Fólk er að gramsa í geymslunum sínum til að finna ýmislegt í búið fyrir okkur. Við erum auðvitað mjög þakklát. Svo skellum við okkur í Costgo á morgun með Chris sem er ótrúlega almennilegur (vinnur með Sigtryggi) og finnum kannski eitthvað sniðugt.
Það var ótrúlegt vesen að kaupa rúmið og á svona stundum er maður þakklátur fyrir að búa á Íslandi þar sem allt er innifalið í verðinu og þjónustan ekki yfirdrifin. Stúlkugreyið greip okkur um leið og við gengum inn og elti okkur svo um alla búðina. Svo var hún ekki að skilja okkur þegar við vildum fá endanlegt verð á rúmum fyrir okkur og litlu... vantaði alltaf eitthvað smá uppá. Þetta er bara svo löng saga og leiðinleg en við vorum í tvo klukkutíma að ganga frá þessu sem segir sitt. Hér í Kanada eru nefnilega tveir skattar sem bætast ofaná verðið sem er uppgefið og samanlagt eru það 14% mjög pirrandi og svo eru alltaf einhver tilboð í gangi til að reyna að sneiða framhjá skattinum en það endar alltaf á því að maður borgar alveg það sama... "coupon or no coupon"

þriðjudagur, júlí 27, 2004

Fyrsta blogg :)

Jæja þá er ég loksins byrjuð að blogga.  Er enn ekki komin með tölvu þar sem við eigum ekkert heimili ennþá... erum að vinna í því en gamla íslenska snobbið er soldið að láta á sér kræla þar sem standardinn er nokkur annar hér hvað varðar veraldleg gæði! En við erum aðeins búin að tuna okkur niður á þessum rúmum tveim vikum sem við höfum verið hér.  BBQ að minnsta kosti einu sinni í viku, leikið "crazyball" og "mexican horseshoe" og svo bara chillað í sólinni.  Reyndar var ágætur dagur í dag því það var soldið "kalt" bara 28 stiga hiti og svo var reykjarmökkur yfir bænum og brunalykt því það var skógareldur einhversstaðar í nágrenninu!!  Litla skvísan er að aðlagast, var svolítið strekkt fyrstu vikuna og leið á því að hanga bara með mömmu sinni en er núna að kynnast nokkrum stelpum og byrjar svo í leikskóla ekki á morgun heldur hinn júhú... líka soldið gott fyrir mömmu :)  Mamma er líka að kynnast fullt af fólki og stefnir á fyrsta "girls night out" næstkomandi föstudagskvöld gaman gaman.
Svo ætlar Sigtryggur líka að reyna að blogga en hann er búinn að vera að vinna non stop síðan við komum, vona bara að hann fái frí næstu helgi... krossa fingur.
Ætlum svo að kíkja á eitt hús annað kvöld og vonum bara að við fáum það, það eru nefnilega tugir umsækjenda um eitt hús.... við komum víst á versta tíma hvað þetta varðar. 
Jæja krossið fingur fyrir okkur :-)